Ekkert fyrirtæki hefur hækkað það sem af er degi og nemur lækkun úrvalsvísitölunnar 1,06% og er hún 5.507,27 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Mosaic Fashions hefur lækkað um 2,47% en félagi birti þriggja mánaða uppgjör sitt í gær, Landsbankinn hefur lækkað um 1,89%, Actavis Group hefur lækkað um 1,42%, Kaupþing banki hefur lækkað um 1,34% og Avion Group hefur lækkað um 1,17%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,54% það sem af er degi og er 131,85 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.