TUI
Group
birti í morgun uppgjör fyrir 4. ársfjórðung. Tekjur félagsins á fjórðungnum námu 3,9 milljörðum evra sem er 7% aukning frá sama tíma í fyrra.
TUI
er stærsta ferðaskrifstofa heims í dag. Þetta kemur fram á vef
Financial Times
. TUI var stofnað árið 1923 og er með höfuðstöðvar í
Hannover
og
Berlín
í Þýskalandi.
TUI
hefur aldrei fengið jafn margar bókanir í byrjun árs og það fékk nú í janúar. Bókanir fyrir sumarið hafa aukist um 14% á milli ára, sem þykir sína að
TUI
hafi hagnast töluvert á gjaldþroti Thomas
Cook
ferðaskrifstofunnar í september. Eftir gjaldþrotið gekk
TUI
inn í ýmsa hótel-samninga sem Thomas
Cook
hafði við Miðjarðarhafið. Auk þess bætti
TUI
21 flugvél í flotann. Strax eftir birtingu uppgjörsins hækkaði hlutabréfaverð
TUI
um 12%.
TUI hafði pantað 15 Boeing 737 Max farþegaþotur þegar tvö mannskæð flugslys urðu til þess að þoturnar voru kyrrsettar. Í desember tilkynnti TUI að tap félagsins vegna kyrrsetningarinnar næmi um 300 milljónum evra eða tæpum 42 milljörðum króna. Á fundinum í morgun kom fram að vegna sterkrar bókunarstöðu geri TUI ráð fyrir tekjuvexti á þessu ári þrátt fyrir að viðurkenna að það geri ekki ráð fyrir að Max-vélarnar fari í loftið. (e. ... despite acknowledging that it did not expect to run the 737 Max aircraft this year ).
Friedrich Joussen , forstjóri TUI , sagðist reikna með bótagreiðslum frá Boeing á árinu og að samningaviðræður þess efnis stæðu yfir. Reiknað er með að bæturnar verði tvískiptar. Hluti verður greiddur í reiðufé en hluti verði formi afsláttar af framtíðarpöntunum frá Boeing .