Undanfarið hefur Ríkisútvarpið ohf. verið gagnrýnt harðlega fyrir framgöngu sína á auglýsingamarkaði. Stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar hafa sent kvörtun bæði til Samkeppniseftirlitsins og Fjölmiðlanefndar og telja þeir að RÚV hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína.

Ríkisútvarpið hefur ekki stofnað dótturfélag í kringum samkeppnisrekstur sinn þrátt fyrir að skýr lagaákvæði kveði á um að það skuli gert. Þetta kemur fram á vef Vísis .

Í þriðju grein laga um Ríkisútvarpið er kveðið á um hlutverk og skyldur Rúv. Í 4. grein laganna segir: „Ríkisútvarpið skal stofna og reka dótturfélög, sem að fullu leyti eru í eigu þess, fyrir aðra starfsemi en þá sem kveðið er á um í 3. gr.“

Margrét Magnúsdóttir, skrifstofustjóri hjá Rúv, segir í skriflegu svari til Vísis að unnið sé að útfærslu 4. greinarinnar í samstarfi RÚV og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. „Það eru ýmis lagaleg álitaefni sem finna þarf lausn á áður en næstu skref verða tekin,“ segir hún.