Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Nýherja [ NYHR ] og TM Software. Gengið var endanlega frá samningi um kaup Nýherja á öllu hlutafé í TM Software 25. janúar sl. og voru þau háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar í rekstrarþjónustu og hýsingu og þróun sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software er móðurfélag Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og IPT, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Með TM Software innanborðs verður Nýherji enn betur í stakk búinn að veita viðskiptavinum heildarþjónustu í upplýsingatækni því til verður eitt fremsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins. Kaupin eru þar af leiðandi mikilvægur áfangi í þróun Nýherja og treystir enn frekar stöðu samstæðunnar á upplýsingatæknimarkaði,“ segir Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja, í tilkynningunni.

Eftir kaupin á TM Software eru yfir 730 starfmenn hjá samstæðu Nýherja í um 20 dótturfélögum á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi. Meðal einstakra dótturfélaga má nefna Applicon Holding ehf., Dansupport S/A og ParX ehf. Heildarvelta Nýherja og TM Software var um 13,7 milljarðar króna árið 2007.

Hlutabréf í Nýherja eru skráð í OMX Kauphöll Íslands.