Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion banka, segist sáttur við afkomu bankans á fyrstu níu mánuðum ársins. Afkoman er þó rúmum fjórum milljörðum minni en hún var á sama tímabili í fyrra.

Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum núna nemur 10,1 milljarði króna en hann nam 14,5 milljörðum á sama tímabili í fyrra.

VB sjónvarp ræddi við Höskuld.