Seðlabankinn hefur óskað eftir tilboðum í íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum liðum. Þetta kemur fram fréttatilkynningu frá bankanum og er þetta sagt liður í afnámi gjaldeyrishafta. Í tilkynningunni segir jafnframt:

„Viðskiptavökum á millibankamarkaði með gjaldeyri er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin. Seðlabankinn býðst til að kaupa 15 ma.kr gegn greiðslu í evrum. Tilboðum skal skilað fyrir 7. júní 2011. ... Samhliða útboðinu mun Seðlabankinn, fyrir hönd ríkisjóðs, bjóðast til að kaupa til baka krónuskuldabréf ríkissjóðs sem falla á gjalddaga fyrir lok maí 2013.

Markmið þessara fyrstu aðgerða í fyrri áfanga áætlunarinnar um losun gjaldeyrishafta, er að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn býðst til að kaupa og með ofangreindum endurkaupum á ríkisbréfum er dregið úr mögulegum hliðaráhrifum viðskiptanna á skuldabréfamarkað.“