Hagar hafa sent frá sér fréttatilkynningu í tilefni af umræðu um greiðslustöðvun Baugs, sem meðal annars var fjallað um í Viðskiptablaðinu í dag. Þar er áréttað að greiðslustöðvunin hefur ekki áhrif á rekstur Haga.

"Hagar eru sjálfstætt félag, með sjálfstæðan rekstur og efnahag.  Upplýsingar um rekstur og efnahag Haga eru aðgengilegar á vef Kauphallarinnar, þar sem ársreikningur félagsins er birtur og einnig upplýsingar um 6 mánaða uppgjör félagsins," segir í tilkynningunni.

Þar segir að rekstur Haga hafi gengið ágætlega á yfirstandandi rekstrarári, sem lýkur nú í lok febrúar.  ,,Gera má ráð fyrir að afkoma félagsins fyrir fjármagnsliði og afskriftir verði betri en á því rekstrarári sem lauk í lok febrúar 2008.  Þá var afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir 2.906 milljónir króna.

Fjármagnsliðir félagsins eru hinsvegar neikvæðir, m.a. vegna mikillar veikingar íslensku krónunnar, verðbólgu sem var langt umfram áætlanir og vegna afskrifta á fjárfestingum, sem að hluta til hafa komið fram í 6 mánaða uppgjöri félagsins, sem var birt í októbermánuði," segir í tilkynningunni sem er undirrituð af Finni Árnasyni forstjóra.

Staða Haga er því sterk, hvort sem horft er á rekstur eða efnahag félagsins.