Sérfræðingahópur um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum mun skilar niðurstöðum sínum í janúar næstkomandi. Í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins segir að vinna hópsins sé á áætlun.

Hópurinn þarf að ræða hugmyndir hópsins við verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra vegna skörunar á verkefnum hópanna.