Greiningardeild Arion banka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans kjósi að lækka stýrivexti um 50 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi sem haldinn verður miðvikudaginn 10. desember. Helstu rök fyrir stýrivaxtalækkun eru að mati greiningardeildarinnar í fyrsta lagi þau að raunvaxtastig er töluvert yfir því sem er ákjósanlegt. Ársverðbólga hafi ekki einungis lækkað frá síðustu vaxtaákvörðun heldur hafi verðbólguhorfur einnig lækkað verulega og hafi því aðhald peningastefnunnar aukist umtalsvert frá síðasta fundi peningastefnunefndar. Jafnframt hafi verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lækkað umtalsvert síðastliðinn mánuð og telur greiningardeildin að töluverður árangur hafi náðst við að bæta kjölfestu verðbólguvæntinga undanfarið.

Í öðru lagi séu hagvaxtartölur á fyrstu níu mánuðum ársins mun slakari en spár gerðu ráð fyrir. Sá kröftugi vöxtur innlendrar eftirspurnar sem peningastefnunefnd hefur haft áhyggjur af virðist því ekki vera að raungerast.

„Óvissuþátturinn að þessu sinni er þó hvað gerist eftir helgi þegar kynntar verða tillögur ráðgjafahópusins sem starfar að áætlun um afnám hafta. Nú liggur fyrir ákvörðun stjórnvalda að samþykkja undanþágubeiðnir sem lúta að forgangskröfum í bú gamla Landsbankans og lenging í Landsbankabréfinu. Ef frekari skref verða stigin í átt að afnámi hafta á næstunni má færa rök fyrir því að Seðlabankinn stigi varlega til jarðar með lækkun stýrivaxta en við teljum engu að síður að raunvaxtastigið sé það hátt að 50 punkta lækkun raungerist í desember,“ segir í Markaðspunktum greiningardeildarinnar.