Á fyrsta ársfjórðungi ársins í ár fluttust hingað til lands 2.816 erlendir ríkisborgarar á meðan 671 þeirra fluttust á brott.

Um er að ræða meiri aðflutning en á sama tíma á fyrra ári en einnig minni brottflutning. Ef heldur sem horfir er nýtt metár í uppsiglingu hvað nettóinnflutning erlendra ríkisborgara varðar, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Misvísandi vísbendingar um samdrátt

Þó er tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir að þetta öra innstreymi útlendinga haldi áfram samfara áframhaldandi kólnun efnahagslífsins.

„Vísbendingar eru nokkuð misvísandi um hvort og að hve miklu leyti sé tekið að hægja á í atvinnulífinu,” segir í vefritinu.

„Þannig kemur það einnig nokkuð á óvart að á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur aðflutningur íslenskra ríkisborgara aukist og dregið úr brottflutningi þeirra. Ofangreind þróun bendir til að enn hafi verið mikill gangur í atvinnulífinu á fyrsta ársfjórðungi 2008 hvað sem síðar verður.”