Laugavegur fyrir neðan Vatnsstíg og Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verða frá og með 17. júní sumargötur fyrir gangandi vegfarendur. Bílum er beint um greiðar hjáleiðir og opið er fyrir akstur um þvergötur, auk þess sem bílastæði fyrir hreyfihamlaða verður við göngugötu. Gert er ráð fyrir akstri með aðföng kl. 8 – 12 virka daga, en almennar bifreiðastöður í götunni eru óheimilar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Pósthússtræti frá Kirkjustræti verður sumargata strax um helgina, frá laugardegi 7. júní, með sama fyrirkomulagi og hinar sumargöturnar. Sumargöturnar fá að njóta mannlífsins fram til mánudagsins 1. september. Í samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs er gert ráð fyrir þeim möguleika að framlengja tímann ef hagsmunaaðilar óska eftir því tímanlega.

Einnig er borgarbúum boðið að hjálpa við að velja litina sem eiga að ríkja á sumargötum segir Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt og umhverfisfræðingur, en hún leiðir verkefnið „Sumar götur eru sumargötur.“Velunnarar litríkra gatna eru beðnir um að velja á milli þriggja litasamsetninga: PollaPönk - burtu með fordóma! MelónuÆði - safaríkir litir. StrandarSnilld - sandur milli tánna? Litirnir verða svo notaðir til að lífga upp á umhverfið og er verkefnið hluti af eðlilegu viðhaldi, en mála þarf borgarbekki, nestisborð og hjólahlið.

Myndir af litunum sem í boði eru og ljósmyndir af sumargötum er að finna í frétt á vef Reykjavíkurborgar .