Bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino var á meðal gesta í garðveislu Jón Ólafssonar vatnsbónda og stofnanda Skífunnar. Jón, sem fagnar sextugsafmæli 6. ágúst næstkomandi, hélt veisluna heima hjá sér við Baldursgötuna síðdegis í dag og var þar margt góðra gesta.

Auk Tarantinos voru á meðal gesta erlendir vinir Jóns og þjóðþekkt tónlistarfólk sem margt hefur fylgt Jóni síðan hann stofnaði Skífuna á áttunda áratug síðustu aldar. Margir þeirra tóku lagið og stóð gleðin fram á kvöld í garðinum og á svölum húss Jóns.

Eva Björk Ægisdóttir frá Viðskiptablaðinu var að sjálfsögðu á staðnum og tók myndir af Jóni og gestum hans.

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )

© Eva Björk Ægisdóttir (Eva Björk )