Þórey Guðmundsdóttir hefur verð ráðin sem forstöðumaður hagdeildar hjá Samskipum. Í tilkynningu frá Samskipum kemur fram að Þórey er viðskiptafræðingur, Cand oecon frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við fjármál og uppgjör í 17 ár, þar af í átta ár sem forstöðumaður fjármálasviðs hjá Straumi fjárfestingarbanka og síðar sem  fjármálastjóri  Centerhotels.

Fram kemur að Þórey mun veita forystu fjölbreyttri starfsemi hagdeildar og bera ábyrgð á bókhaldi og uppgjörum félagsins og dótturfélaga þess á Íslandi og Færeyjum. Einnig mun hún hafa  umsjón með gerð samstæðuuppgjörs Samskipa á Íslandi og hafa aðkomu að  heildarsamstæðuuppgjöri fyrir samstæðu Samskipa.

Þórey er gift Leifi Eiríkssyni stöðvarstjóra Flugfélags Íslands á Reykjarvíkurflugvelli  og eiga þau 3 börn.