Búið er að velja fjóra einstaklinga úr tólf manna hópi sem til greina koma sem næsti fréttastjóri RÚV.

Kjarninn fullyrðir að þetta séu þau Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Rakel Þorbergsdóttir og Ingólfur Bjarni Sigfússon. Þær tvær fyrrnefndu eru varafréttastjórar, en sá síðastnefndi er yfirmaður nýmiðladeildar RÚV. Að auki er Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður á RÚV, í hópi þeirra umsækjenda sem koma til greina.

Óðinn Jónsson er fráfarandi fréttastjóri RÚV.