Eigendur Milestone Import Export Ltd. og Milestone ehf. hafa gert samkomulag um tilfærslu hluta í Actavis Group hf. Þannig hefur Milestone ehf. eignast hluti í Actavis Group hf., samtals að nafnverði kr. 95.827.338,44 ásamt því að öðlast rétt til að kaupa af Milestone Import Export Ltd. hluti í Actavis Group hf. að nafnverði 27.506.625. Jafnframt hefur Milestone Import Export Ltd. selt Landsbanka Íslands hf. kr. 49.627.792 að nafnvirði hlutafjár í Actavis Group hf., sem samhliða hefur selt Milestone ehf. bréfin framvirkt til 6 mánaða.

Milestone ehf. hefur einnig tekið yfir framvirkan samning Mileston Import Export Ltd. við Íslandsbanka hf. um kaup á hlutum í Actavis Group hf. að nafnvirði kr. 10.416.095.

Milestone Import Export Ltd. og Milestone ehf. eru í eigu Ingunnar Wernersdóttur, Karls Wernerssonar og Steingríms Wernerssonar. Framangreindar tilfærslur hafa engin áhrif á atkvæðisrétt Milestone ehf. og fjárhagslega tengdra aðila í Actavis Group hf. Karl Wernersson er stjórnarmaður í Actavis Group hf.