Tvö erlend fyrirtæki sem gera út skemmtiferðaskip hafa óskað eftir samstarfi við ferðaþjónustufyrirtækið Iceland Excursions. Í tilkynningu segir að hugmynd útgerðarfyrirtækjanna sé að bjóða Íslendingum jafnt sem útlendingum upp á tollfrjálsar siglingar í kringum landið. Erlendu ferðamennirnir koma flugleiðis til landsins en þeir íslensku mæta einfaldlega niður á bryggju. Í skipunum verður hægt að bjóða upp á ýmislegt sem bannað er hér á Íslandi, eins og t.d. fjárhættuspil í spilavíti.

Það er nýleg breyting á tollalögum sem hefur vakið áhuga erlendu fyrirtækjanna á því að bjóða upp á tollfrjálsar skemmtisiglingar innanlands. Alþingi samþykkti í fyrra tillögu Árna Þórs Sigurðssonar alþingismanns um breytingu á 6. grein tollalaga nr. 88/2005. Með breytingunni er skemmtiferðaskipum, sem skráð eru erlendis, gert kleift að gera út tollfrjálst hér við land í allt að fjóra mánuði á ári.

Fyrirtækin íhuga að sigla hingað að vori og fara að hausti. Ýmsar stærðir skemmtiferðaskipa koma til greina, allt frá litlum 120 farþega skipum yfir í 1.500 til 2.000 farþega skip. Í tilkynningunni segir að semmtiferðaskip sem sigla til og frá landinu með farþega hafi ávallt notið tollfríðinda, en ekki skip sem hyggjast skipta ítrekað um farþega hér á landi. Þau hafa talist vera í innanlandssiglingum, og þar með skyld til að greiða tolla og skatta af öllum aðföngum og skila virðisaukaskatti til ríksjóðs. Breytingunni á tollalögum var ætlað að reyna að bregðast við þessu og tryggja bætta samkeppnisaðstöðu Íslands í ferðaþjónustunni.

Fyrirsjáanlegt er að með þessari lagabreytingu opnast miklir möguleikar í nýsköpun fyrir ferðamenn, enda ólíkt að sjá Ísland frá sjó en af landi. Vafalítið munu íslenskir farþegar einnig kunna vel að meta lægra verð á veitingum og gistingu um borð sökum þess að enga skatta eða tolla þarf að borga. Til viðbótar verður einnig mögulegt að bjóða upp á afþreyingu s.s. spilavíti og næturklúbba líkt og í skemmtiferðaskipunum sem sigla til og frá landinu.

Fulltrúar útgerðarfyrirtækjanna hafa einnig spáð í að bjóða upp á ferðir í rólegri kantinum, nokkurs konar ”Bótel” þar sem lítið er siglt en þess meira lagt upp úr gistingu um borð í skipi með öllum lystisemdum sem það hefur upp á að bjóða. Með hækkandi olíuverði leita útgerðafélög eftir tækifærum til að spara eldsneyti. Þau hafa áttað sig á því að skipin sjálf hafa mikið aðdráttarafl, óháð því hvort þau eru á ferð eða ekki.

Ljóst er að skip sem taka þúsundir ferðamanna og liggja við bryggju yfir aðal ferðamannatímann auka verulega framboð af gistirými hér á landi. Væntanlega freistar slíkur fljótandi ”hótel”rekstur útgerðir erlendra skemmtiferðaskipa, þar sem þær þurfa ekki að borga 14% virðisaukaskattinn sem nýlega var lagður á alla gistingu innanlands, né gistináttagjaldið.

Tekið er fram í tilkynningunni að vegna þess langa tíma sem þarf til að markaðssetja ferðir af þessu tagi erlendis telji útgerðarfélögin ólíklegt að þær geti hafist fyrr en sumarið 2014. Þá er áréttað að þótt erlendu útgerðarfyrirtækin tvö hafi lýst yfir áhuga á samstarfi við Iceland Excursions um þessar siglingar hér við land, þá hafi þau enga ákvörðun tekið í þeim efnum. Gera má ráð fyrir að fleiri útgerðarfélög en þessi tvö vilji kanna möguleika á íslenskum innanlandssiglingum og mun þeim öllum verða vel tekið hjá Iceland Excursions.