Toyota á Íslandi hefur ákveðið að lækka verðlistaverð á nýjum Toyota- og Lexus-bílum í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um lækkun virðisaukaskatts úr 25,5% í 24% eins og boðað er í nýju fjárlagafrumvarpi. Sem dæmi lækkar verð á Land Cruiser VX sem í dag kostar 13.330.000 krónur niður í 13.130.000 krónur. Lækkunin nemur 200 þúsund krónum á bíl.

Fram kemur í tilkynningu frá Toyota á Íslandi að lækkunin taki gildi frá og með miðvikudeginum 10. september og þurfi neytendur því ekki að bíða til áramóta eftir að lækkun virðisaukaskattsins komi fram í verði á nýjum bílum.