Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifað í gær undir margfræga reglugerð um hámarksmagn transfitusýra í matvælum.

Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að markaðssetja matvæli sem innihalda meira en 2 grömm af transfitusýrum (hert fita) í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni. Reglur þessar gilda um fitu og önnur matvæli sem innihalda fitu, hvort sem er innihaldsefni eða afleiðingar framleiðsluferlis. Reglugerðin gildir ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi. Frestur til að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar er til 1. ágúst 2011.

Hvað er transfita?

Transfita sú sem reglugerðin nær til verður til þegar fljótandi olía er hert í .þeim tilgangi að auka geymsluþol hennar þannig að hún þráni síður. Olían er hituð og vetni er dælt í gegnum hana. Við þetta herðist hún en um leið missir hún lífræn efni sem í raun gera olíuna holla.

Á Íslandi hafa engar reglur verið í gildi um leyfilegt magn hertrar fitu í matvælum og engar reglur eru til um merkingar á matvörum um magn þessarar fitu. Til að lesendur geti glöggvað sig betur á þessu dularfulla fyrirbæri þarf að leita eftir nöfnum eins og „hálf hert olía" eða „að hluta til hert olía".

Á ensku heitir þetta „Partially hydrogenated oil". Transfita í kexi, sósum og frönskum kartöflum

Mikið hefur verið rætt á síðustu dögum um skaðsemi transfitu að undanförnu og þá oft vísað í rannsókn sem Sten Stender yfirlæknir á sjúkrahúsi í Danmörku stóð fyrir. Þar kom fram að magn transfitu er margfalt meira í matvöru hér á landi heldur en gerist og gengur í nágrannalöndum okkar. Herta fitu er helst að finna í kexi, kökum, bakkelsi eins og vínarbrauði og kleinuhringjum, ýmsu sælgæti, tilbúnum salatsósum og þurrvöru, eins og pakkasúpum og kakómalti, djúpsteiktum mat, frönskum kartöflum, kartöfluflögum, örbylgjupoppi og ýmsum tilbúnum réttum.

Íslendingar skara fram úr Dönum í transfituáti Í rannsókn Sten Stender í Danmörku kom fram að magn hertrar fitu í frönskum kartöflum á KFC á Íslandi var 26% á meðan það var eingöngu 2% í Danmörku að því er segir á vefsíðu Heilsubankans. Í magni hertrar fitu í örbylgjupoppi áttu Íslendingar vinninginn yfir þau 30 lönd sem voru rannsökuð en heildarmagn hertrar fitu eða transfitu var um 15%.

Í Bandaríkjunum voru sett lög 1. jan. 2006 um að allar vörur þyrfti að merkja með nákvæmu innihaldi transfitu eða hertrar fitu. Áður en þessi lög voru sett var kannað magn hertrar fitu í matvöru og til að nefna nokkur dæmi var hert fita 0 - 49% í brauði og kökum, 15 - 28% í smjörlíki, 8 - 35% í kexi, 0 - 13% í jurtaolíum og 0 - 2% í morgunverðarkorni.

Lögleg og ólöglegt transfita

Tvenns konar transfitusýrur finnast í matvælum samkvæmt vefsíðu Heilsubankans. Annars vegar er um að ræða transfitusýrur sem finnast í vömbum jórturdýra (sem verður áfram leyfð samkvæmt reglugerðinni) og hins vegar eru það transfitusýrur sem myndast þegar fljótandi olía er hert (þ.e. hert fita).

Magn transfitusýra í kjöt og mjólkurvörum er um 2 - 5% af heildarfitumagni en dæmi eru um að hert fita geti verið allt að 60% af heildarfitumagni annarra matvara sem yfirvöld telja sér nú skylt að forða landsmönnum frá að neyta.

Neysla á hertri fitu er talin auka líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum og er því talin geta stuðlað að sykursýki 2 og offitu. Að auki lækkar hert fita magn „góða kólesterólsins" og eykur magn þess slæma í blóðinu.