Ís­land gegnir nú for­mennsku í ráð­gjafar­nefnd EFTA og tók Sig­ríður Mogen­sen, svið­sstjóri iðnaðar- og hug­verka­sviðs Sam­taka iðnaðarins, við sem for­maður nefndarinnar nú í janúar.

Ráð­gjafar­nefnd EFTA er sam­starfs- og sam­ráðs­vett­vangur aðila vinnu­markaðarins í EFTA-ríkjunum fjórum. Nefndin er ráð­gefandi fyrir fasta­nefnd EFTA og ráð­herra­ráð EFTA, þar sem utan­ríkis­ráð­herrar EFTA- ríkjanna sitja, í mál­efnum frí­verslunar- og EES-samningsins.

„Þetta snýr meðal annars að fram­kvæmd og virkni EES- samningsins og lög­gjöf sem inn­leidd er inn í EES-samninginn frá Evrópu­sam­bandinu, áður en hún kemur til kasta Alþingis“ segir Sig­ríður í sam­tali við Við­skipta­blaðið.

Hún segir mikil tæki­færi felast í þátttöku Ís­lands í nefndinni og vill nýta þau betur, sér í lagi í tengslum við hagsmunagæslu gagnvart reglu­verki ESB og að verja sam­keppnis­hæfni Ís­lands.

„Íslenskt atvinnulíf gegnir for­mennsku í nefndinni á átta ára fresti þannig að það skiptir máli að nýta þetta ár til þess að hafa á­hrif í þágu hags­muna Ís­lands en einnig til að hafa á­hrif innan EFTA sam­starfsins enda EFTA ríkin með mjög sam­eigin­lega hags­muni,“ segir Sig­ríður.

For­gangs­mál nefndarinnar eru á­kveðin á hverju hausti fyrir komandi ár og tók Sig­ríður þátt í að móta þau síðast­liðið haust.

„Mark­mið nefndarinnar í ár er að hafa með mark­vissum hætti á­hrif á á­herslu og stefnu­mál innan EFTA og EES á sviðum sem hafa á­hrif á at­vinnu­líf og vinnu­markað,“ segir Sig­ríður.

Í ljósi þrjá­tíu ára af­mælis EES-samningsins mun ráð­gjafar­nefndin einnig vinna skýrslu um lær­dóm af sam­starfinu sem verður kynnt á fundi EES-ríkjanna á Ís­landi í maí næst­komandi.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði