Útgjöld á mann hafa hækkuðu um 10,6% á tímabilinu 2002-2004 borið saman við 2001-2003. Þetta rannsóknar á útgjöldum heimilanna árin 2002-2004, á verðlagi ársins 2004 sem hagstofan hefur kynnt.

Neysluútgjöld á heimili árin 2002?2004 hafa hækkað um 9,3% frá tímabilinu 2001?2003. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,62 einstaklingum í 2,58 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 10,6%.

Hlutfall matar og drykkjarvöru í heimilisútgjöldum heldur áfram að lækka, er nú 14,4% en var 15,2%. Hlutfall húsnæðis, hita og rafmagns hefur hækkað úr 22,5% í 22,9% af heildarútgjöldunum og hlutur ferða og flutninga jókst úr 12,9% í 15,7%, aðallega vegna aukins innflutnings á nýjum bílum.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins eru um 340 þúsund krónur á mánuði, tæpar 132 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum.

Í úrtaki voru um 3.600 heimili, 1.888 þeirra tóku þátt í rannsókninnni og var svörun því um 53%.