Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,74 frá fyrri mánuði og mælist 365,3 stig. Vísitala án húsnæðis er 347,7 stig og hækkar um 0,81% frá september.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgu sl. 5 ár en á því tímabili hefur hún aldrei verið jafn lág og nú. Tólf mánaða verðbólga mældist 3,4% í ágúst 2007 en eftir það fór hún nokkuð hækkandi eins og sést á myndinni.

Það var síðan fyrst í febrúar á síðsta ári sem verðbólgan fór að síga niður á við hæst varð 12 mánaðav verðbólga 18,6% í janúar 2009. Þá tók verðbólgan kipp upp á við í byrjun þessa árs en hefur frá því í apríl leitað niður á við.

Kostnaður vegna hitaveitu hækkaði um 23,5% (vísitöluáhrif 0,27%) í október og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,6% (0,13%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,9% (0,11%) og voru áhrif af  hækkun markaðsverðs 0,12% en af lækkun raunvaxta   -0,01%. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,7% (0,10%).

3,3% verðbólga

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 4,0% verðbólgu á ári (4,9% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).