Viðskiptaráð (VÍ) hefur ekki farið varhluta af gagnrýni á störf þess á árunum fyrir fall bankanna. Gagnrýnin snýr meðal annars að skýrslum um fjármálakerfið sem gerðar voru árin 2006 og 2007, áherslu á sjálfsprottnar reglur atvinnulífsins, ofmetnaði í útgáfu og stuðnini við innihaldslítinn ímyndaáróður.

„Því miður hefur gagnrýni á þessa þætti í starfsemi ráðsins að mörgu leyti verið réttmæt. Fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis að starfsháttum viðskiptalífsins var ábótavant árin fyrir hrun, meðal annars hvað varðar gagnsæi, góða stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Þar stóð Viðskiptaráð ekki vaktina sem skyldi og fagnar ráðið gagnrýninni og málefnalegri umræðu. Á grunni hennar verður lögð rík áhersla á endurskoðun ýmissa þátta í starfi Viðskiptaráðs. Sú endurskoðun hófst raunar fljótlega eftir bankahrun og hefur verið áherslumál stjórnar ráðsins síðan þá.“

Þetta segir í skoðun sem birt er í dag. Segir að ágætt sé að nota orðið „ástand“ yfir það hugarfar sem hér var ráðandi fyrir hrun. „Með sanni má segja að margir hafi gagnrýnislítið tekið þátt í því að hér varð til kerfi sem ekki tókst að vinda ofan af nema með þeim afleiðingum sem nú eru öllum kunnar. Viðskiptaráð Íslands getur ekki skorast undan að hafa verið þátttakandi í því.“

Ekki ætlað að vera óumdeilt

Í greininni segir að lögð hafi verið rík áhersla á endurskoðun ýmissa þátta í starfi ráðsins. Einna helst megi nefna endurskoðun á innra starfi, skipun vinnuhópa um sjálfbærni og bætta upplýsingagjöf atvinnulífsins, nýja og breytta útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og Umbótaþing Viðskiptaráðs vorið 2010.

„Málefnastarfi Viðskiptaráðs er hins vegar ekki ætlað að vera óumdeilt. Ráðið hefur starfað í 93 ár og alla tíð staðið fyrir ákveðin grunngildi. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að stærð og umsvif hins opinbera raski ekki jafnvægi milli opinberra og einkaaðila í hagkerfinu. Því tengt hefur Viðskiptaráð ávallt lagt áherslu á mikilvægi einstaklingsframtaks og kröftugs markaðsbúskapar fyrir framþróun heilbrigðs og alþjóðlega samkeppnishæfs atvinnulífs. Hvoru tveggja er grundvöllur verðmætasköpunar og velferðar í íslensku samfélagi.

Þessi gildi eiga, nú sem fyrr, afar vel við. Vel skipulagður markaðsbúskapur á grunni athafna framtakssamra einstaklinga mun varða leið úr núverandi efnahagsógöngum og verður áfram megináhersla í starfi Viðskiptaráðs. Engu að síður munu stjórn og starfsfólk Viðskiptaráðs, með hliðsjón af þeirri gagnrýni sem hér er fjallað um, halda áfram frekari endurskoðun á áherslum ráðsins. Í því starfi verður sérstaklega hugað að markvissari stuðningi við góða stjórnarhætti og gott siðferði í íslensku atvinnulífi.“

Skoðun Viðskiptaráðs í heild má lesa hér .