Samtök atvinnulífsins hafa ritað bréf til Seðlabanka Íslands þar sem fundið er að afskiptum stjórnar VR af Lífeyrissjóði Verzlunarmanna. Frá þessu er greint á vef Samtakanna .

Í bréfinu óskar SA eftir því að Seðlabankinn grípi til tafarlausra aðgerða, umfram almenn tilmæli til hagsmunaaðila almennt, til að standa vörð um sjálfstæði sjóðsins og hag sjóðsfélaga. „Þannig má tryggja að faglega verði staðið að fjárfestingaákvörðunum í sambandi við fyrirhugað hlutafjárútboð Icelandair," segir í fréttinni.

„Með kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands var Icelandair að reyna að búa flugfreyjum sambærileg starfskilyrði og tíðkast í nágrannalöndum okkar eins og bæði Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugvirkjafélag Íslands hafa fallist á. Með því er verið að reyna að tryggja samkeppnishæfni félagsins og standa þannig vörð um fjölda starfa hjá félaginu, og afleidd störf, sem mörg hver eru unnin af sjóðsfélögum í sjóðnum."

Þá segir jafnframt að með yfirlýsingu sinni sé  stjórn VR að reyna að taka beina stjórn á sjóðnum þvert á lög, reglur og góða stjórnarhætti.

„Virðist þetta nú vera orðinn árviss viðburður stjórnarinnar, að sýna Seðlabankanum algera lítilsvirðingu og láta varnaðarorð aðstoðarseðlabankastjóra fjármálaeftirlits sem vind um eyru þjóta. Samkvæmt lögum og eðli máls er sjóðurinn ekki í eigu eða undir stjórn VR heldur er hann til fyrir sjóðsfélaga hans og er stjórnað af stjórnarmönnum sem eiga að vera sjálfstæðir í störfum sínum gagnvart öllum, þar á meðal þeim sem tilnefna þau í stjórn, og fara að öllum lögum og reglum."