Reiknistofa bankanna og Skema hafa stofnað sjóð sem ber nafnið „Forritarar framtíðarinnar.“ Megin hlutverk sjóðsins er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins.

„Að sjóðnum koma fyrirtæki af öllum stærðum sem leggja honum lið á ýmsan máta, svo sem með fjárframlögum, tæknibúnaði, þekkingu og ráðgjöf. Bakhjarlar sjóðsins  eru  Nýherji, Íslandsbanki, Landsbankinn, Microsoft, RB, Cyan veflausnir og CCP.  Atvinnulífið er mikilvægur hluti þessa samfélagsverkefnis og geta fyrirtæki lagt sitt af mörkum til að efla enn frekar tækniþekkingu íslenskra ungmenna,“ segir í tilkynningu vegna stofnunar sjóðsins

Stjórn sjóðsins skipa Gísli Þorsteinsson markaðsstjóri Nýherja, Guðmundur Tómas Axelsson markaðsstjóri RB, Katrín Dóra Þorsteinsdóttir forstöðumaður hugverkaiðnaðar og mannauðs hjá Samtökum iðnaðarins, Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Landsbankans og Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka.

Skortir tæknimenntað fólk
Í tilkynningunni er bent á að upplýsingatæknigeirinn hafi vaxið hratt og segja megi að fáar atvinnugreinar geti í dag þrifist án tækni.  „Ísland stendur frammi fyrir skorti á tæknimenntuðu fólki í landinu en samkvæmt skýrslu starfshóps á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtaka iðnaðarins   útskrifast um 500 manns á ári af raungreina- og tæknisviðum Háskóla landsins á meðan þörfin er um 1.000 manns,“ segir í tilkynningunni.

Tækifæri fyrir skóla og sveitarfélög
Þá segir í tilkynningunni að skólar og sveitarfélög geti sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun, ráðgjöf og tækjabúnað, allt eftir þörfum umsóknaraðila. „Skema mun sjá um þjálfun og ráðgjöf til styrkþega, en fyrirtækið hefur unnið ötullega að því að undanfarin ár að kenna börnum frá 6 ára aldri að forrita auk þess að þjálfa kennara og vinna að aukinni notkun tækni í skólastarfi,“ segir í tilkynningunni.