Víninnflutningsfyrirtækið Vínó ehf. í Mosfellsbæ hefur fengið vottun Vottunarstofunnar Túns til innflutnings og markaðssetningar á vínum frá Suður-Ameríku, sem framleidd eru úr vínþrúgum samkvæmt alþjóðlegum reglum um lífræna ræktun, segir í fréttatilkynningu.

Vottunin nær til nokkurra tegunda af hvítvíni og rauðvíni frá Argentínu og Chile. Með henni er staðfest að vín þessi eru framleidd samkvæmt kröfum sem eru sambærilegar við þær sem gerðar eru til lífrænnar vínræktar og víngerðar í Evrópu.

Vínó ehf. er fyrsti íslenski innflytjandi vína sem hlýtur vottun samkvæmt reglum um lífræna framleiðslu, segir fréttatilkynningunni. Jafnframt er fyrirtækið hið fyrsta hér á landi sem hlýtur vottun sem krafist er til markaðssetningar á lífrænum vörum sem fluttar eru inn frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.   Með vottun Túns er staðfest að vínþrúgur sem notaðar eru til víngerðarinnar eru ræktaðar með lífrænum aðferðum, þ.e. án tilbúins áburðar og eiturefna, og að víngerðin uppfylli kröfur sem gerðar eru til úrvinnslu lífrænna hráefna.

Vottunin staðfestir einnig að fyrirtækið Vínó ehf. vinnur eftir alþjóðlegum reglum um innflutning, merkingar og markaðssetningu lífrænna afurða frá löndum utan EES.

Vínó ehf. flytur inn vín frá mörgum helstu vínræktarlöndum heims, þar á meðal frá Eyjaálfu, Norður- og Suður-Ameríku. Lífrænu hvít- og rauðvínin sem Vínó ehf. flytur inn eru framleidd og vottuð í Chile og Argentínu og eru markaðssett undir merkjunum Black River, Adobe og Coyam. Hið síðastnefnda, Coyam rauðvínið, kemur frá Emiliana Organico í Chile, sem mun nú vera stærsti framleiðandi heims á lífrænum og bío-dynamiskum vínum.

Lífræn vínrækt og víngerð er í mikilli sókn Þúsundir hektara eru nú vottaðar víða um heim í lífrænni ræktun á vínþrúgum, en náttúrulegar aðferðir eru grundvöllur þeirra gæða sem þar er sóst eftir. Enda hefur framleiðsla á lífrænum vínum aukist gríðarlega á undanförnum árum. Þetta endurspeglast á fjölþjóðlegum vörusýningum vínframleiðenda þar sem vín úr lífrænt og bío-dynamiskt ræktuðum þrúgum verða sífellt fyrirferðarmeiri, segir í fréttatilkynningunni.

Lífrænar afurðir hafa þá sérstöðu á markaði að allur ferill þeirra, frá ræktun eða söfnun hráefna, til pökkunar í neytendaumbúðir, er undir eftirliti óháðs aðila, þ.e. vottunarstofu sem fylgist með því að uppruni og meðferð afurðanna sé í samræmi við alþjóðlegar kröfur um lífræna framleiðslu.

Vottunarstofan Tún hóf vottun lífrænna afurða á Íslandi árið 1996. Síðan þá hafa tugir bænda og fyrirtækja – hlotið vottun og er Vínó ehf. hið 68. í röðinni. Auk þess vottar Tún framleiðslu nokkurra fyrirtækja á náttúruvörum og aðföngum til lífrænnar framleiðslu.