Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2014 er 421,0 stig (maí 1988 = 100) og lækkaði um 0,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 393,4 stig og lækkaði um 0,61% frá október. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands .

Helstu áhrifavaldar á vísitöluna voru að flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 17,3% og verð á bensíni og olíum lækkaði um 2,6%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,0%, en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2,0% verðhjöðnun á ári, eða 4,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2014, sem er 421,0 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.313 stig fyrir janúar 2015.