Fyrstu átta mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 150,9 milljarða króna en inn fyrir 245,5 milljarða króna fob (266,1 milljarð króna cif), segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 94,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 63,4 milljarða á sama gengi, vöruskiptajöfnuðurinn var því 31,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,6 milljarða króna og inn fyrir 28,2 milljarða króna fob (30,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 11,6 milljarða króna. Í ágúst 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,8 milljarða króna á föstu gengi¹.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu átta mánuði ársins var 8,3 milljörðum eða 5,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 55,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,8% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski, frystum flökum og söltuðum og/eða þurrkuðum fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi fiskimjöls og frystrar rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 19,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkandi álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu átta mánuði ársins var 39,5 milljörðum fob eða 19,2% meira á föstu gengi en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,1 milljarð, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 45,8%. Innflutningur hrá- og rekstrarvara jókst um 33,7%, eða um 16,7 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 16,7% aukningar, eða um 3,0 milljarða. Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 11,3% eða 3,6 milljarða en hverfandi aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 11,4%, eða um 5,2 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings.