Starfsemi MP Fjárfestingarbanka í Eystrasaltslöndunum fer ört vaxandi og stefnt er að því að víkka út starfsemina svo þjónustan verði með svipuðu sniði og hjá bankanum hér á Íslandi.  Í dag veitir útibúið fjárfestum í Eystrasaltslöndunum og Norðurlöndunum fjármálaþjónusta með áherslu á fjárfestingar á fjármálamörkuðum í Austur-Evrópu.

Í tilkynningu MP Fjárfestingabanka segir að fyrsta skrefið í átt til enn frekari stækkunnar sé flutningur útibúsins í Vilnius í nýja og glæsilega skrifstofubyggingu sem staðsett er í þeim hluta borgarinnar þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað og nýtt viðskiptahverfi er að verða til. Skrifstofurýmið er 315 fermetrar og starfsstöðvar fyrir 28 manns, allt á einni hæð. Með þessum flutningi batnar öll starfsaðstaða til muna og veitir möguleika til aukinna vaxta á komandi misserum. Skrifstofan var áður staðsett í gamla bænum í húsnæði sem var farið að þrengja mjög að vaxandi starfsemi bankans. Útibú bankans í Vilníus hóf starfsemi í upphafi árs 2007 með fimm starfsmönnum en þeir eru nú orðnir þrettán. Nýlega var ráðinn nýr yfirmaður til að stýra útibúi bankans í Vilnius, Vygandas Jûras en hann hefur yfir fimmtán ára reynslu af starfi í fjármálageiranum í Litháen og á alþjóðavettvangi.