XL Leisure Group hefur verið lýst gjaldþrota þar sem ekki tókst að endurfjármagna félagið.

Því er ljóst að ábyrgð Eimskipafélags Íslands vegna Jointrace Ltd, móðurfélags XL, mun falla á félagið og þá um leið hafa áhrif á efnahag og afkomu Eimskips.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Fram kom í tilkynningu Eimskips til Kauphallar miðvikudaginn 9. september sl., að fjárfestar undir forystu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar myndu kaupa kröfuna félli hún á félagið.

Í tilkynningu frá því í morgun segir að fjárhæð kröfu vegna sölu XL og flugrekstrarleyfisábyrgða, sem ofangreindir fjárfestar hafa lýst sig reiðubúna að kaupa, er um 207 milljónir evra eða um 26 milljarðar íslenskra króna.

Eins og fram hefur komið mun fyrrnefndur hópur fjárfesta fresta gjalddaga kröfunnar eftir að hafa tekið hana yfir.  Jafnframt er fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum annarra lánardrottna á hendur Eimskip.

Auk þess er Eimskip í ábyrgð vegna flugvélaleigusamninga eins og fram kemur í ársskýrslu félagsins, en fjárhagsleg áhrif vegna þeirra eru enn óljós.