Stjórn Samtaka fjárfesta hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirtöku ríkisins á Glitni. Samtökin kalla eftir skýringum frá stjórnendum Glitnis - hvers vegna lausafjárstaðan versnaði jafn skyndilega og raun ber vitni, hvaða veð Glitnir bauð til Seðlabankans sem ekki þóttu nægilega góð og hvaða gögn lágu til grundvallar á mati hversu stóran hluta Glitnis ríkissjóður ætti að eignast með innspýtingu nýs hlutafjár. Yfirlýsingin er svohljóðandi í heild sinni.

Stjórn Samtaka fjárfesta telur að ríkisstjórn, og ráðamönnum Seðlabanka og Glitnis beri skylda til að upplýsa almenning um aðdraganda þess að ríkissjóður tók yfir þrjá fjórðu hlutafjár Glitnis.

Frá­sagnir af aðdraganda og framvindu málsins virðast misvísandi. Með það að markmiði að nauð­synlegt traust geti skapast að nýju á íslenskum fjármálamarkaði er nauðsynlegt að glöggar upp­lýsingar fáist um einstaka þætti málsins.

Þær upplýsingar sem hér um ræðir eru m.a. eftirfarandi:

  • Glitnir taldi sig hafa gengið frá fjármögnun út árið 2008 og vel inn á næsta ár. Hvað breyttist svona skyndilega varðandi fjármögnun Glitnis?
  • Hvers eðlis voru þau lánsloforð sem Glitnir taldi sig hafa frá erlendum bönkum um eigin fjár­mögnun þegar þeir gáfu út yfirlýsingar um að bankinn væri fullfjármagnaður? Voru þetta aðeins vilja­yfirlýsingar eða undirritaðir lánasamningar?
  • Hvaða skuldabréf voru það sem Glitnir bauð Seðlabankanum að veði fyrir hugsanlegu láni? Er eitthvað því til fyrirstöðu, að listi yfir tegundir skuldabréfanna og hvaða fjárhæðir voru í hverjum skulda­bréfaflokki, verði gerður opinber?
  • Hvaða skýrslur, minnisblöð og greinargerðir Seðlabanka, ríkisstjórnar og Glitnis lágu til grundvallar því mati sem fram fór á skuldabréfunum sem Glitnir bauð að veði? Hvaða skýrslur, minnisblöð og greinargerðir Seðlabanka, ríkisstjórnar og Glitnis lágu til grund-vallar því mati sem fram fór á eignarhlutfalli ríkissjóðs við kaupin á hlut í bankanum?
  • Geta ráðamenn Glitnis og löggiltir endurskoðendur, PricewaterhouseCoopers, lýst því yfir að í verðbréfasjóðum Glitnis hafi aðeins verið bréf þeirrar tegundar, og í þeim hlutföllum, sem yfirlýst stefna hvers sjóðs segir til um?
  • Nýlegir atburðir hafa valdið fjölda hluthafa í Glitni verulegum búsifjum, jafnt almennum hlutafjáreigendum sem og lífeyrissjóðum launfólks. Það knýr á um mikilvægi þess að ofangreindar upplýsingar verði veittar svo fljótt sem verða má.

Reykjavík 2.október 2008