Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, var tekjuhæstur á lista Tekjublaðsins yfir laun sveitarstjórnarfólks með ríflega 3,8 milljónir króna í mánaðarlaun. Gunnar var einnig á toppi listans á síðasta ári.

Nafni hans, Gunnar Valur Gíslason, situr í öðru sæti listans en hann er einmitt bæjarfulltrúi í sveitarfélaginu sem Gunnar stýrði áður. Mánaðartekjur Gunnars Vals námu 3,1 milljón króna.

Núverandi bæjarstjóri og arftaki Gunnars í Garðabæ, Almar Guðmundsson, situr í 13. sæti listans með 2,4 milljónir króna á mánuði.

Birgir Gunnarsson, fyrrverandi bæjastjóri Ísafjarðarbæjar, situr svo í þriðja sæti listans með rétt rúmlega 3 milljónir króna í mánaðarlaun.

Tekjur tíu hæstu á mánuði:

  1. Gunnar Einarsson, fyrrv. bæjarstj. Garðabæ — 3,8 milljónir kr.
  2. Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltr. Garðabæ — 3,1 milljónir kr.
  3. Birgir Gunnarsson, fv. bæjarstj. Ísafjarðarbæjar — 3 milljónir kr.
  4. Halla Björk Reynisdóttir, fv. fors. bæjarstj. Akureyrar — 2,9 milljónir kr.
  5. Kristján Þór Magnússon, fv. sveitarstj. Norðurþings — 2,8 milljónir kr.
  6. Ármann Kristinn Ólafsson, fv. bæjarstj. Kópavogs — 2,6 milljónir kr.
  7. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri — 2,6 milljónir kr.
  8. Bryndís Sigurðardóttir, fv. sveitarstj. Tálknafjarðarhr. — 2,6 milljónir kr.
  9. Magnús Örn Guðmundsson, fv. fors. bæjarstj. Seltjarnarness — 2,5 milljónir kr.
  10. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar — 2,4 milljónir kr.

Hér fyrir neðan er listi yfir 30 launahæstu sveitarstjórnarmenn landsins samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði