Ný og hressandi útgáfa af rafbílnum MG4 verður kynnt hjá BL nk. laugardag, 18. nóvember milli kl. 12 og 16. Nýja útfærslan heitir að fullu nafni MG4 XPower og er í senn aldrifinn og kraftmeiri en aðrar gerðir þessa vinsæla bíls.

MG4 XPower er búinn tveimur rafmótorum við hvorn ás sem skila 435 hestöflum og 600 Nm togi og knýja bílinn á einungis 3,8 sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Rafhlaðan er 64 kW sem gefur allt að 385 km drægni á hleðslunni. Auk ríkulegs búnaðar annarra gerða MG4 er XPower búinn ýmsum umframbúnaði sem auka sportlega aksturseiginleikana og jákvæða upplifun ökumanns af akstrinum.

Fyrir utan önnur sæti, sportpedala og sportlegar bremsudælurnar innan við 18 tommu álfelgurnar má einnig nefna stífari fjöðrun og sk. „Launch Control“ sem hámarkar hröðun bílsins úr kyrrstöðu. Þá kemur sérlega lágur þyngdarpunktur og jöfn þyngdardreifing sér einnig vel í XPower enda henta þeir eiginleikar sér sérlega vel í kraftmiklum og aldrifnum MG4 Xpower þar sem fjölbreytt ökuaðstoðin fær að njóta sín til fulls með háþróuðum fjöðrunarbúnaðinum.

MG4 hefur hlotið afar góðar móttökur og ýmsar viðurkenningar evrópskra bílavefja og tímarita frá því að bíllinn var kynntur á síðasta ári; ekki síst fyrir hagstætt verð miðað við búnað og góða aksturseiginleika. Með MG4 XPower hefur framleiðandinn nú bætt um betur með enn fleiri nýjungum.