Land Rover í Bretlandi kynnti fyrir viku síðan Defender 130, fjórða og nýjasta útgáfa bílsins á eftir Defender 90, Defender 110 og Defender Hard Top sem kynntir hafa verið frá því í júní 2020.

Nýi Defender 130 er 34 centimetrum lengri að aftan en Defender 110 og fáanlegur í SE, HSE, X-Dynamic og X útgáfum, auk fyrstu útgáfu (First edition) sem verður búin sérstökum séreinkennum í ytra útliti og í farþegarýminu auk þess sem staðalbúnaður verður aukinn í tilefni frumsýningarinnar.

Land Rover Defender 130 er hægt að panta með rúmgóðum sætum fyrir allt að átta farþega (2+3+3). Þá er nýi bíllinn búinn allri nýjustu tækni framleiðandans á sviði drif- og öryggisbúnaðar auk mikilla þæginda í farþegarými ásamt því sem Defender 130 verður boðinn með ákveðnum sérlitum á fyrstu útgáfu í tilefni frumsýningar auk séreinkennum á ytra byrði eins og kynnt verður nánar á frumsýningu Jaguar Land Rover við Hestháls í haust.

Sérkennandi Defender 130

Í farþegarými verður m.a. boðið upp á nýja liti og nýtt efnisval og geymsluhólf fyrir hvern og einn farþega í öllum þremur sætaröðunum til að koma til móts við farþega í hverju sæti ásamt greiðu aðgengi að rúmgóðri þriðju sætaröðinni og birtu gegnum tvískipt glerþak.

Dæmi um annan búnað eru m.a. loftpúðafjöðrun, 90 cm vaðgeta, 11,4“ Pivi Pro snertiskjár með fjölmörgum upplýsingum og vali um birtingamöguleika. Meðal annars býður Pivi Pro kerfið nákvæmt og notendavænt leiðsögukerfi (what3words) sem þarfnast einskis símasambands til að leiðsegja ökumanni til næsta áfangastaðar hvar sem er í heiminum. Einnig má nefna Matrix LED aðalljós, hita í öllum sætum, fjögurra kerfa mjög fullkomna loftræstingu, Meridian hljóðkerfi og allt að 2.291 rúmlítra farangursrými í átta sæta bílnum. Þá verður átta sæta Defender 130 með fimm Isofix bílastólafestingar auk þess sem hægt er að láta bílinn læsast sjálfkrafa sé bíllykillinn í meira en 1,5 metra fjarlægð.

Val um skilvirkar vélar

Land Rover býður Defender 130 með kraftmiklum og hagkvæmum vélum, þar á meðal P300 og P400 sex strokka Ingenium bensínvélar með mildri tvinntækni (MHEV) og D250 og D300 sex strokka Ingenium dísilvélar. P300 vélin skilar áreynslulausum og mjúkum afköstum og er hröðum úr kyrrstöðu í 100 km/klst 8,0 sekúndur, en 6,6 sekúndur með P400. Ingenium dísilvélarnar bjóða aukið tog, mjúkt viðbragð og mikla sparneytni. Hröðun D300 úr kyrrstöðu í 100 km/klst er 7,5 sekúndur og 8,9 sekúndur með D250 dísilvélinni sem skilar einnig áreynslulausum og góðum afköstum.

Allar útgáfur Defender 130 eru búnar aldrifi (iAWD) og átta þrepa ZF sjálfskiptingu, þar sem iAWD-kerfið stjórnar sjálfkrafa afköstum og dreifingu vélaraflsins til fram- og afturhjólanna ásmt því sem rafstýrð loftpúðafjöðrun og háþróuð driftækni, m.a. Terrain Response Land Rover, hámarka aksturseiginleika og drifgetu við mismunandi vegaðstæður.