Húsfyllir var á netöryggisráðstefnu sem Syndis hélt á Grand Hótel í gær. Rúmlega 220 manns hlýddu á fyrirlestra íslenskra og sænskra sérfræðinga um netöryggi og stórauknar hættur af völdum hakkara.

Meðal annars var kafað ofan í stöðuna á nýjustu aðferðum hakkara sem móta landslagið í vörnum og viðbragði fyrirtækja og stofnana.

Sænski netöryggissérfræðingurinn og hakkarinn David Jacoby var meðal þeirra sem fluttu erindi. Aðrir fyrirlesarar voru Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, Úlfar Andri Jónasson, Guðríður Steingrímsdóttir, Aleandre Thiroux, Jóhann Þór Kristþórsson, Theódór Gíslason, Stefanía Berndsen og Björn Orri Guðmundsson. Framtíðarspekúlantinn Bergur Ebbi Benediktsson stýrði ráðstefnunni.

Úlfar Andri Jónasson, öryggisráðgjafi hjá Syndis, sagði m.a. að rauntíma öryggisvöktun hefði getað komið í veg fyrir þónokkrar gagnagíslatöku árásir síðustu misserin.

Guðríður Steigrímsdóttir, öryggisstjóri Syndis, sagði að með aukinni áhættu af netárásum sé mikilvægt að vera vel undirbúinn og fyrirtæki ættu að æfa viðbrögð við slíkum atvikum. Ný lög um öryggi mikilvægra innviða (NIS2) munu setja auknar kröfur á stjórnendur og á sama tíma búa til góðan ramma til að koma fyrirtækjum á öruggari stað.

Guðríður Steingrímsdóttir, Stefanía Berndsen og Hörn Valdimarsdóttir.
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)
Anton Már Egilsson og David Jacoby.
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)
Theódór Gíslason, Örn Þór Alfreðsson og Þóroddur Sigfússon.
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)
Alexandre Thiroux og Jóhann Þór Kristþórsson.
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)
Gunnar Agnarsson, Guðjón Ingi Ágústsson og Bára Hlynsdóttir.
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)
© Bent Marinósson (Bent Marinósson)