Bergrún Elín Benediktsdóttir hefur verið ráðin sem yfirlögfræðingur VÍS trygginga. Hún var áður meðeigandi Fulltingi, lögfræðistofu sem sérhæfir sig í slysa- og skaðabótamálum.

Stofan sinnir einnig málum er varða vátryggingarétt og vinnurétt, en Bergrún hóf þar störf árið 2008. Að auki hefur hún sinnt kennslu í skaðabótarétti við Háskólann á Bifröst.

„Ég er full tilhlökkunar að takast á við ný og spennandi verkefni hjá VÍS tryggingum. Félagið er á spennandi vegferð og með metnaðarfull markmið á markaði. Ég hlakka til að láta til mín taka á nýjum vettvangi,“ segir Bergrún Elín Benediktsdóttir, yfirlögfræðingur VÍS trygginga.

Bergrún er með meistaragráðu í viðskiptafræði (MBM) og meistarapróf í lögfræði (cand. Jur). Hún hefur nú þegar hafið störf hjá VÍS tryggingum.

„Ég fagna komu Bergrúnar í frábæran hóp stjórnenda hjá félaginu. Ég er þess fullviss að reynsla hennar og menntun muni styrkja félagið til framtíðar,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga.