Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur ráðið Regínu Ásvaldsdóttur í starf bæjarstjóra á kjörtímabilinu sem lýkur árið 2026. Áætlað er að hún hefji störf í byrjun september en ráðningarsamningurinn tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur af bæjarráði fimmtudaginn 14. júlí og birtur opinberlega í kjölfarið að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Áður gegndi Regína stöðu bæjarstjóra Akraneskaupstaðar árin 2013-2017. Þá hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Festu, félags um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, verið skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar.

Regína er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Aberdeen, diplóma í opinberri stjórnsýslu og cand. mag. í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Osló. Á ferli sínum hefur Regína átt sæti í fjölmörgum stjórnum og starfshópum, nú síðast starfshópi sem skilaði tillögum um húsnæðismál til þjóðhagsráðs í maí síðastliðnum.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor gerðu Framsókn, Samfylkingin og Viðreisn með sér samning um myndun meirihluta. Ákveðið var að fá inn faglega ráðin bæjarstjóra.

Halla Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs:
„Við erum lánsöm hér í Mosfellsbæ að ganga til samstarfs við svona reynslumikinn stjórnanda eins og Regína er. Framundan eru stór verkefni, meðal annars í uppbyggingu og áframhaldandi fjölgun íbúa og stefnumótun til framtíðar. Þessi verkefni fela í sér fjölbreyttar áskoranir og því mikilvægt að við fáum til liðs við okkur einstakling með mikla og farsæla reynslu, stóran skammt af almennri skynsemi, þjónustulund og brennandi áhuga á málefnum sveitarfélagsins. Við bjóðum Regínu velkomna í Mosfellsbæ og hlökkum til samstarfsins.“

Regína Ásvaldsdóttir, verðandi bæjarstjóri:

„Ég þakka kærlega fyrir það traust í minn garð sem mér er sýnt með ráðningunni. Mosfellsbær er gott og fjölskylduvænt samfélag í örum vexti og hér eru mörg tækifæri þegar til framtíðar er litið. Ég hlakka til að starfa með öflugum bæjarfulltrúum og góðu starfsfólki Mosfellsbæjar að þeim mikilvægu verkefnum sem eru framundan.“