Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála og Rakel Óttarsdóttir framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Icelandair Group. Þær munu taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins og leiða tvö svið sem eru partur af nýju skipulagi sem kynnt var í lok síðasta árs. Þær munu hefja störf á fyrsta ársfjórðungi, að því er kemur fram í tilkynningu Icelandair.

Sjá einnig: Uppstokkun hjá Icelandair

Sylvía Kristín ÓIafsdóttir snýr aftur til Icelandir en hún starfaði hjá flugfélaginu á árunum 2018-2021, fyrst sem forstöðumaður stuðningsdeildar flugrekstrar og síðar sem forstöðumaður leiðakerfis félagsins. Hún hefur frá þeim tíma starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo en hún flutti sig yfir til upplýsingatæknifyrirtækisins í byrjun síðasta árs.

Þar áður starfaði hún fyrir Landsvirkjun þar sem hún var deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði og fyrir Amazon í Evrópu, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur.

Sylvía er með M.Sc. próf í operational research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía er stjórnarformaður Íslandssjóða og sat í stjórn Símans á árunum 2018-2020.

Rakel Óttarsdóttir hefur starfað sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Alvotech síðan seinni hluta árs 2020 og var áður yfirmaður upplýsingatæknisviðs og alþjóðlegrar verkefnastofu Össurar (CIO and VP of Global Program Office). Fyrir þann tíma, starfaði hún í um 14 ár hjá Arion banka, þar sem hún var meðal annars framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssvið frá 2011 og framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs frá 2016 þar sem hún leiddi mótun og framkvæmd stafrænnar stefnu bankans.

Rakel er með MBA gráðu frá Duke University í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Það er ánægjulegt og mikill styrkur fyrir félagið að fá Sylvíu og Rakel til liðs við okkur til að leiða tvö mikilvæg svið innan félagsins. Sylvía þekkir Icelandair og flugrekstrarumhverfið mjög vel eftir fyrri störf hjá okkur og mun leiða þjónustu- og markaðsmál þar sem höfuðáhersla er lögð á upplifun viðskiptavina og að styrkja Icelandair vörumerkið enn frekar. Rakel kemur með mikla reynslu inn í félagið á sviði stafrænnar þróunar og upplýsingatækni og mun meðal annars leiða stafræna vegferð félagsins með það að markmiði að stuðla að einföldu og ánægjulegu ferðalagi fyrir viðskiptavini okkar og leggja grunninn að bættri nýtingu gagna við ákvarðanatöku.“

Í tilkynningu Origo segir að Sylvía muni áfram vera við störf fram í mars næstkomandi. Jón Björnsson, forstjóri Origo, segir að Sylvía hafi undanfarið ár verið einn af lykilstarfsmönnum fyrirtækisins og verið virkur þátttakandi í stefnumótun og rekstri Origo. „Það er eftirsjá af Sylvíu en við þökkum fyrir frábært samstarf og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.“