Um 42% leigjenda nýta sér rétt sinn til húsnæðisbóta að því er fram kemur í nýrri könnun Íbúðalánasjóðs. Það eiga því umtalsvert fleiri rétt á bótum en nýta sér þær. Ákveðið hefur verið að útgreiðsla hús­næðis­bóta muni fær­ast til Íbúðalánasjóðs frá Vinnu­mála­stofn­un. Hyggst sjóðurinn í kjölfarið ráðast í sér­stakt átak til að fræða leigjendur og leigusala um húsnæðisbætur.

„Á tímabilinu frá janúar til september í ár voru 4 milljarðar greiddir í húsnæðisbætur og miðað við óbreytt umsóknarhlutfall þá verða greiddir út 5,3 milljarðar í slíkar bætur á árinu öllu," segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði. „Á fjárlögum ríkisins í ár var gert ráð fyrir 6,4 milljörðum í húsnæðisbætur. Það eru því 1,1 milljarður, sem gert hafði verið ráð fyrir að rynni til að fólks á leigumarkaði, sem verður eftir í ríkiskassanum í lok árs.

Í leigu­markaðskönn­un hag­deild­ar Íbúðalána­sjóðs, sem gerð var í ág­úst og sept­em­ber, kemur í ljós að húsnæðisbætur eru að meðaltali 31% af leiguverði og því ljóst að um nokkra búbót gæti verið að ræða fyrir marga einstaklinga og fjölskyldur á leigumarkaði. Að meðaltali greiða leigjendur um 41% tekna sinna í húsaleigu og sumir mun meira."

Ítarlegar niðurstöður úr könnuninni verða kynntar á húsnæðisþingi Íbúðalánasjóðs og velferðarráðuneytisins, sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica á morgun. Þingið hefst klukkan 10 og stendur til 17.