Rúmlega 132 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í maímánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta eru um 23,5% færri farþegar en í maí 2008.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.

Þar kemur einnig fram að frá áramótum hafa tæplega 511 þúsund farþegar farið um völlinn en til samanburðar þá voru þeir rúmlega 689 þúsund á sama tímabili í fyrra.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.