Marel Food Systems hefur gefið út 3,6 milljarða króna skuldabréf sem tekið verður til viðskipta um miðjan mánuðinn.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að skuldabréfið (MARL 09 1) er vaxtagreiðslubréf með gjalddaga þann 1. nóvember 2011. Fyrsti vaxtadagur, sem jafnframt er útgáfudagur, er 20. maí 2009.

Fyrsti gjalddagi vaxta er hins vegar 1. nóvember á þessu ári en fjöldi vaxtagreiðslna er fimm.