Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,34% og er 5.428,69 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Tryggingamiðstöðin hefur hækkað um 11,11% í fjórum viðskiptum sem nema um 24 milljónum króna, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,73% og Actavis Group hefur hækkað um 0,16%.

FL Group hefur lækkað um 2,78% en í gær hækkaði félagið um 7,78% en þann dag keypti það eigin bréf fyrir um 2,9 milljarða, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1,18%, Bakkavör Group hefur lækkað um 0,66%, Landsbankinn hefur lækkað um 0,50% og Kaupþing banki hefur lækkað um 0,14%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,26% og er gengisvísitalan 132,1 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.