Actavis hefur sett krabbameinslyfið Bicalutamid á markaði í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi. Bicalutamid frá Actavis er fyrsta samheitalyf lyfsins sem fáanlegt er á þessum þremur mörkuðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Actavis.

Þar kemur fram að Bicalutamid er samheitalyf Casodex® frá frumlyfjafyrirtækinu AstraZeneca. Það er notað við meðhöndlun krabbameins í blöðruhálskirtli.

Samheitalyfið frá Actavis var sett á markað daginn sem einkaleyfi frumlyfsins rann út, 8. júlí í Bretlandi og þann 9. í Þýskalandi og Frakklandi.   Samheitalyfið Bicalutamid frá Actavis kom á markað á Íslandi í fyrra samkvæmt tilkynningunni.