Strax við opnun markaða í Evrópu í morgun fór hlutabréfaverð að hækka og nemur hækkunin í dag um 1%. Breska hlutabréfavísitalan FTSE 100 hækkaði um 1,09% í dag, þýska vísitalan DAX hækkaði um 0,92% og franska vísitalan CAC hækkaði um 1,08%.

Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum eru einnig á uppleið en eru hækkanirnar ekki jafn miklar þar sem markaðir hafa verið opnir skemur vestanhafs. Dow Jones hefur hækkað um 0,37%, Nasdaq hefur hækkað um 0,56% og S&P 500 um 0,44%.