Arion banki fær lánshæfismatið i.A3 með stöðugum horfum hjá matsfyrirtækinu Reitun. Matið hefur hækkað ú i.BBB1 með jákvæðum horfum. Lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa bankans er i.AA2, með stöðugum horfum, sem er óbreytt frá fyrra ári.

Í greiningu Reitunar kemur fram að úrvinnsla vandræðalána hafi gengið samkvæmt áætlun og gæði lánasafnsins hafi aukist til muna auk þess sem hlutfall íbúðarlána í lánasafni hafi aukist og veðstaða batnað samhliða hækkandi fasteignaverði.

Fram kemur í tilkynningu frá Arion banka að matið byggir á háu eiginfjárhlutfalli bankans, háu lausafjárhlutfalli og sterkri markaðsstöðu ásamt líklegum utanaðkomandi stuðningi Seðlabankans ef til þess kæmi. Jafnframt er minnkandi óvissa tengd gæðum eigna bankans og afskriftarþörf fer minnkandi. Efnahagshorfur eru ágætar og framtíðarhorfur bankans eru góðar.

Horfur eru á því að lánshæfi bankans gæti batnað enn frekar með auknum gæðum útlánasafnsins, minni samþjöppun og auknum stöðugleika í rekstri og umhverfi.