Askja Notaðir bílar hafa flutt starfsemi sína á Klettháls 2 í Reykjavík. Askja Notaðir bílar var áður til húsa í höfuðstöðvum bílaumboðsins Öskju að Krókhálsi 11 en þar verða áfram sölu- og þjónustudeild Kia og Mercedes-Benz ásamt verkstæði og varahlutadeild.

,,Markmið okkar með breytingunni er að komast nær viðskiptavinum og markaði notaðra bíla. Á Kletthálsi og nágrenni eru margar bílasölur og því mikill markaður með notaða bíla. Því er eðlilegt fyrir okkur að vera í hringiðunni,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju.