Ásthildur Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til Viðskiptaráðs Íslands sem sérfræðingur í samskipta- og upplýsingamálum.

Hún starfaði áður á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins þar sem hún vann m.a. með samningahópi um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Ásthildur er stjórnmálafræðingur að mennt og nam nýsköpunar- og frumkvöðlafræði á meistarastigi við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS). Hún tekur við störfum af Ragnari Þorvarðarsyni, sem haft hefur umsjón með upplýsingamálum ráðsins frá því lok árs 2009, en heldur nú til frekara náms erlendis.