Meðallestur Fréttablaðsins á hvert tölublað jókst úr 59,8 prósent í 62,7 prósent á tímabilinu nóvember í fyrra til janúar á þessu ári, samanborið við tímabilið ágúst til október í fyrra. Meðallestur Morgunblaðsins á hvert tölublað minnkaði úr 37,2 prósentum í 32,3 prósent á sama tíma tímabili. Þetta kemur fram í nýjustu fjölmiðlakönnun Capacent.