Bankastjórastaðan í Nýja Glitni verður auglýst í febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Þar segir að bankastjórnin hafi farið þess á leit við Birnu Einarsdóttur, núverandi bankastjóra, að hún haldi áfram störfum þar til ráðið hefur verið í stöðuna. Sjálf hefur hún ekki tekið ákvörðun um hvort hún sæki um stöðuna.

„Það er niðurstaða stjórnarinnar að staðan verði auglýst þegar efnahagsreikningur Nýja Glitnis liggur fyrir, en gert er ráð fyrir að hann liggi fyrir í febrúar," segir meðal annars í tilkynningunni.

Fram kemur í tilkynningunni að Birna muni „skoða", eins og það er orðað, hvort hún sæki um þegar staðan verður auglýst.