Besti flokkurinn mun bjóða fram aftur í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Frá þessu greindi Jón Gnarr, borgarstjóri, í Morgunútvarpi Rásar tvö í morgun.

Jón hefur hins vegar ekki ákveðið hvort hann sjálfur verði í framboði, en það skýrist fljótlega. Jón telur að hann hafi náð að setja mark sitt á embættið, þó að hann hefði viljað gera meira en of litlir fjármunir hafi komið í veg fyrir það. Til dæmis hafi verið draumur hans að fá nýja brú yfir Skothúsveg við Tjörnina, sem yrði það falleg að fólk gæti mögulega gift sig á henni. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu RÚV.