„Grýla gamla er loksins dauð!“ segir Björgólfur Thor Björgólfsson. Faðir hans, Björgólfur Guðmundsson, var formaður bankaráðs gamla bankans en Samson eignarhaldsfélag sem var í eigu feðganna átti ríflega 40% hlut í Landsbankanum.

Björgólfur skrifar um Icesave-dóminn á vefsíðu sinni btb.is í morgun og segir m.a. að það fólk sem hafi tengst Landsbankanum gamla hafi þurft að sitja undir ákúrum um föðurlandssvik og ætlast til að það fari með veggjum. Þar rifjar hann m.a. upp að frá upphafi hafi hann haldið því fram að eignir Landsbankans dygðu fyrir Icesave. Hann segir tiltekna stjórnmálamenn hafa haft hag af því að blása Icesave-málið út og gera úr því Grýlu.

„Ég benti fyrst á þetta í viðtali við fréttaskýringarþáttinn Kompás strax eftir hrun, eða 27. október 2008 og sagði nauðsynlegt að halda vel utan um eignir bankans til að þær gætu gengið upp í Icesave. Þetta hefur gengið eftir, enda hafa reglulega borist fréttir af síbatnandi stöðu þrotabúsins. Í þessum þætti varaði ég líka við, að viðbrögð við vandanum gætu reynst afdrifaríkari en vandinn sjálfur og þar reyndist ég einnig sannspár, því miður,“ skrifar hann.

Björgólfur heldur áfram:

„Hverjir sáu sér hag í því að gera ógnvekjandi Grýlu úr Icesave? Getur verið að það hafi hentað ýmsum stjórnmálamönnum vel að sameina þjóðina í ofsafengnum viðbrögðum við sameiginlegum óvini? Er ekki hugsanlegt, að ýmis önnur mál hafi fallið í gleymsku og dá á meðan menn froðufelldu um þá þrælakistu sem biði íslenskra barna? Eru menn núna reiðubúnir að skoða hverjir það voru, sem sáu sér hag í að vekja skelfingu hjá þjóðinni, í stað þess að segja sannleikann um Landsbankann og stöðu hans?“